![]() |
Frímúrarareglan á Íslandi Almennar upplýsingar |
|
Frímúrarakerfi | ||
Í Frímúrarareglunni á Íslandi eru alls 11 stig en
þannig er Reglunni skipt líkt og skóla er skipt í bekki og deildir. Æðsti maður Frímúrarareglunnar er nefndur Stórmeistari
Reglunnar. Ekki starfa allar Frímúrarareglur samkvæmt
sama kerfi. Í þeim Frímúrarareglum sem Frímúrarareglan á Íslandi viðurkennir eru
grundvallaratriðin almennt þau sömu. Frímúrarareglan á Íslandi starfar eftir hinu
svokallaða ,,sænska kerfi", en eftir því starfa einnig Frímúrarareglur í
Danmörku, Noregi, Svíþjóð og að hluta í Finnlandi og Þýskalandi. Náið og
vinsamlegt samband er á milli Frímúrarareglnanna á Norðurlöndum. Í Frímúrarareglunni á Íslandi eru nú um
2900 bræður og í öllum heiminum eru yfir 6 milljónir frímúrara. Frímúrarar eru
flestir í Bandaríkjunum. Í einræðisríkjum er starfsemi frímúrarastúkna bönnuð.
En þrátt fyrir það að hugmyndafræði Frímúrarareglunnar sé í sjálfu sér
alþjóðleg eru ekki til nein alþjóðasamtök frímúrara. Frímúrararegla eða Stórstúka í hverju
landi er sjálfstæð og öðrum óháð. Þrátt fyrir að Frímúrarareglur í hverju landi séu sjálfstæðar er góð samvinna á milli Frímúrarareglna flestra landa og geta íslenskir frímúrarabræður heimsótt erlendar stúkur sem viðurkenndar hafa verið af Frímúrarareglunni á Íslandi og bræður þessara stúkna geta komið í heimsókn í frímúrarastúkur hér á landi. |
|
|