![]() |
Frímúrarareglan á Íslandi Almennar upplýsingar |
|
Hvert er markmið frímúrarastarfs? | ||
Í lögum Frímúrarareglunnar er markmið hennar
skilgreint þannig: ,,Markmið
Reglunnar er að göfga og bæta mannlífið. Reglan vill efla góðvild og drengskap með
öllum mönnum og auka bróðurþel þeirra á meðal." Þannig leitast Reglan við að gera bræðurna að góðum þjóðfélagsþegnum, skilningsríkum og hjálpsömum samborgurum, réttsýnum og velviljuðum mönnum. Frímúrarareglan kemur fram út á við sem mannúðar- og mannræktarfélag. Inn á við leitast hún við að efla hjá bræðrunum sjálfsþekkingu, umburðarlyndi, góðvild og náungakærleika. Frímúrarareglan hefur hvorki opinber né dulin pólitísk markmið og tengist á engan hátt neinum stjórnmálastefnum. Hún hefur engin markmið um gagnkvæma aðstoð eða stuðning við einkahagsmuni bræðranna. Það hefur hvorki fjárhagslegan ávinning né önnur forréttindi í för með sér að vera þar bróðir. |
|
|